Ætlar þú að læra á bíl?
Gunnsteinn R. Sigfússon ökukennari
Akstursmat
Þarftu að fá fullnaðarskírteini?
Ég hjálpa þér með akstursmatið fljótt og vel.
Misstir þú ökuréttindin?
Ég aðstoða þig við að fá þau aftur.
Kenni á bæði bein- og sjálfskiptan bíl.
Nú getur þú valið hvort þú lærir á bein- eða sjálfskiptan bíl. Ef þú tekur ökuprófið á sjálfskiptan bíl, eru réttindin bundin við akstur á þeim. Hins vegar er tiltölulega lítið mál að bæta þá við sig réttindum á beinskiptan bíl síðar meir.
Um mig
Ég hef starfað við ökukennslu frá árinu 2006 en starfaði áður sem lögreglumaður á höfuðborgarsvæðinu.
Einnig er ég annar tveggja eigenda Netökuskólans og hef komið að samningu kennsluefnis þar.
ATHUGIÐ!
Frá og með áramótunum 2027-2027 mun ég hætta kennslu á beinskiptan bíl. Mjög erfitt er orðið að útvega sér nýja beinskipta bíla sem henta í ökukennslu og því mun ég fylgja tíðarandanum og hætta kennslu á beinskiptan bíl um þarnæstu áramót.
Netökuskólinn
Netökuskólinn er stærsti ökuskóli landsins.
Þar tekur þú ökuskóla 1 og 2 í fjarnámi.